CrAzY DaWgS

CrAzY DaWgS

28.01.2008 23:38:20 / pimp

Þessi síða er enþá til!!!

Góða kvöldið gott fólk. Við Vilhjálmur gerðum þá merku uppgvötun í dag að þetta bloggsvæði væri enþá til. Það hefur ekki verið bloggað hér síðan árið 2005 ;) Okkur fynst þetta magnað og að nú sé kominn tími til að hisja upp um sig brækurnar. Núna stendur til að updatea síðuna hehe og reina að hafa þetta eins og hjá fólki. Pimpin böbba shrimpin aiiiit eigum við eh að ræða það eða?

 

kv.

Pimp


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2005 21:18:09 / Dólgur

1stu Verðlaun.

Já takk lesendur góðir fékk bréf sent heim í dag um að þessi síða hefði orðið efst í heimsóknum síðasta mánuð (skv. teljara.is) og vil ég þakka dyggum lesendum og ötulum skrifum okkar bræðra hér fyrir þessi eftirsóttu og síðast en ekki síst frábæru viðurkenningu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2005 14:22:21 / Dólgur

Ný færsla

Koma með nýja færslu og ekki meira en það.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2005 11:25:00 / Dólgur

Til hamingju!!!

Jæja þá er kéllinn orðinn tvítugur og óska ég honum til hamingju með það. Getur loksins keypt í ríkinu án þess að stama. En minni á afmælisveisluna hjá Hauki laugardagskvöldið 2.apríl á breiðinni og verður víst nóg af öli þar, þannig að ég mæti! og þið líka.

Takk fyrir og til hamingju rúsínubollan mín þinn Villi :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2005 17:14:14 / Dólgur

páskar

Páskahelgin liðin og aldrei hef ég upplifað jafn rólega páska og þessa enda ekki hægt að hreyfa sig mikið. meikaði nú samt eitt ball eða hálft kannski nærri lagi og fór síðan heim! En um helgina er áætlað að tralla í ammili hjá Hauki vefstjóra vorum huhumm og veit ég ekkert um áætlanir hans en veit þó að flestum er bara boðið eftir klukkan eitthvað og ætla ég að nýta mér þetta boð og detta í það og svo væri ekki verra ef að einhver spúsa sæji að sér og myndi veita manni samúðard**** 8)sem að ekki myndi skemma allavega. en nenni ekki meir og segji því sé ykkur um helgina. 


» 53 hafa sagt sína skoðun

20.03.2005 23:17:48 / Dólgur

Gaman að því

Jæja kéllinn skellti sér bara út í gær og fór alla leið til ragga á hækjunum (geri það aldrei aftur) fékk besta bjór sem að ég hef smakkað held ég! ekki búinn að bragða deigan dropa líka í 6 vikur. jamm þetta party var svona semí sennilega vegna edrúmennsku minnar enda lét ég mig hverfa um 12:30 búinn að fá nóg. nenni ekki að skrifa meir enda bara að skrifa vegna skamma sem að ég fengið. skelli hér inn britney eftirhermunni gjörið og svo vel.

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=1429

peis át dawgs


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2005 17:14:56 / Dólgur

tilgangurinn

Það mun koma færsla hingað inn þegar lærbrotið hefur jafnað sig og veikindi hauks tekið enda en þangað til góða nótt.

» 44 hafa sagt sína skoðun

22.02.2005 14:52:54 / Dólgur

Vangaveltur

komin er upp sú staða að löngun er til að aflita á sér skaphárin og ætla ég þess vegna að setja upp skoðanakönnun í sambandi við þssar vangaveltur:

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.02.2005 10:46:46 / Dólgur

Efasemdir

Já efasemdir hér á bæ! Er farinn að efast um gildi dólgana þar sem að suddaleg dólgasaga brann á vörum persónu einnar er ég ræddi við og vorum við "dólgarnir" hvergi nærri! Þar sem að konu ein í koti hér í bæ gengur víst ekki einsömul þessa dagana....... ÓNEI það er komin kaka í ofninn og ekki af lakari endanum enda eru víst ÞRÍR sem að koma til greina og eru þeir allir þjóðþekktir einstaklingar og verða víst að bíða í nokkra mánuði í viðbót eftir að fá að vita hvort að þeir eigi krakkann eða ekki. En eitt er víst að kominn er tími á að lækka í göngin og tel ég að maður einn hafi ekki greitt mikið fyrir að hafa fengið að kíkja í "(leg)göng" þessi jafnvel þó hann hafi verið undir áhrifum og valdið stórslysi! En valdi getur hann beitt til að fá greitt niður þessi hvalfjarðargöng og kannski hann sjái sóma sinn í því að lækka þau í tilefni komandi átakatíma. Svo væri einnig fínt að fá eins og einar dísel gallabuxur á kantinn eða eins og eitt landakort en svona auðvelt er það víst ekki og reyni því að komast til botns í þessu máli.

Með von um blóm í haga kveðja Dólgurinn

Og já meika ekki þetta kellingaleysi stelpur msg/me. :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2005 11:16:51 / Dólgur

holla bolla

Jæja þá er Sturlaugur orðinn 20 ára gamall og vill ég hér með óska honum til hamingju með afmælið. En já það verður tekið á því um helgina enda kominn tími til! ég og Haukur ætlum að mála bæinn rauðann og reyndar ætlum við líka að útkljá soldið mál sem að brunnið hefur af vörum okkar uppá síðkastið og jafnvel ganga í skrokk á honum (ef aðilinn verður ekki góður). En fyrst og fremst ætlum við að drekka og drekka MEIRA og koma síðan með óritskoðað blog hér á sunnudag og jafnvel að ljúga einhverju líka.

» 51 hafa sagt sína skoðun

03.02.2005 08:47:57 / Dólgur

Meira af hinu góða

Held að Haukur sé búinn að standa sig með einstakri prýði í slúðrinu og ætti kannski bara að gera útá þetta en svo fólk viti þá blómstrar ástin hjá honum og mun greinargóð lýsing á því koma í séð&heyrt í næstu viku og ættu fáir að láta það "sannsögla" blað fram hjá sér fara!!

Haukur koddu með eina draugasögu fyrir okkur.

Og já mig sárvantar klámmyndirnar með íslensku gærunum!!!


» 56 hafa sagt sína skoðun

31.01.2005 15:34:54 / pimp

Enn og aftur tekur Agla lögin í sína hendur

Þær sögusagnir voru að berast í hús að Stúlkan hafi þrumað niður hinn illræmnda glæpamann sófus, Stelpan vill meina að sófus hafi verið stórhættulegur samfélaginu og hafi haft slæmt í hyggju.Talið er að hún hafi þaulskipulagt morðtilraunina enda fundust engin vitni. Hún vissi á hvaða tíma strákgreyið fór í sína daglegu kvöldgöngu, en hún var til að færa líf umrædds manns til betri vegar. Þegar hann gerði sig kláran að labba yfir kirkjubrautina kemur Agla á Svörtu þrumuþotunni sem að hún á að hafa rænt af kærasta sínum, hún taldi að ef upp kæmist um bílin þá væri hún a.m.k laus allra saka, enda er hún þekkt fyrir að svífast einskis í baráttuni við hórdóms og fíkniefnaglæpamenn. Jæja allavega hún kemur þarna á sirka 120km hraða og dúndrar strákin í götuna, hann skíst í framrúðuna og þaðan af þakinu á bílnum uppí loft og á götuna. Öglu fanst ekki nóg komið. Sögur segja að hún hafi sett í bakkgír og bakkað yfir hálfdauðan mannin, eftir það reikspólaði hún frá vetvangi með bros á vör og skyldi  aumyngjan eftir í blóði sínu. u.þ.b klukkustund, síðar nær maðurinn að drösla sér uppá gangstétt þá búin að missa löppina og nær að  komast í símaklefa og hringja á sjúkrabíl. Löggan hóf stórtæka leit að hinum metnaðarfulla öryggisverði, eftir 2tíma eltingarleik varð svarta þotan bensínlaus og varð stúlkan að svara til saka. Hún var kærð fyrir morð af gáleysi enda stakk hún af á vetvangi án þess að hringja á sjúkrabíl. Hver veit hvernig hún hefur komist upp með svo væga kæru, en eitt er ljóst að þetta atvik eftir að kosta budduna því málið er í rannsókn. Stundum borgar sig að láta kyrrt við liggja, halda aftur að sér höndum eða halda bara kjafti eins og flestir
um það sem að maður veit ekkert um, ef fólki fynst gaman að geta í eyðurnar þá ráðlegg ég því að halda sig við krossgáturnar.
ciao!! mdfuckas =P =***

Verið sæl að sinni og hafið það fast í minni að þú vilt ekki hafa mig á könnuni þinni!

(ath. ekki fékkst nafn á vitorðsmanni sem aflaði upplýsinga um atburðinn)


» 66 hafa sagt sína skoðun

25.01.2005 18:22:51 / pimp

Góðan dag góðan dag glens og grín það er mitt fag....

Já góðan og blessaðan daginn, þetta var alveg ótrúlega róleg helgi hjá mér enda kominn í pásu. Ég hef margt að segja en ráðleg sjálfum mér að þegja. Sumir virðast taka glensinu heldur alvarlega, en ég var að fá heitar fréttir hérna inn til mín rétt í þessu. Sögur herma að Magnús Ægirsson hafi átt vingott við eina funheita hnátu á síðastliðnu skólaballi, ég nefni engin nöfn hömm!! hömm!! guði sé lof að það rættist úr drengnum, tjahh hér á landi, það hefði verið hægt að líkja honum við stóðhest á kararíeyjum. Sama stelpa á víst að hafa séð ljósið um leið og hún hitt hann Magnús og skemmti sér víst konunglega. Förum ekki dýpra í þá sálma enda er því vart þorandi. Já úrslitin úr síðastliðinni skoðanakönnun voru ekki falleg enda ætla ég mér ekkert að nefna hana, hún var jú líka bara grín. Þó að ég hafi svona stóra vöðva en lítinn heila þá get ég nú samt skrifað og talað sem er alger plús, ef fólk ætlar að tjá sig um vitsmuni annara þá í guðana bænum, gerið það ef þið hafið efni á því!!!! já gæti sagt margt mjög ljótt en ég er svo ógeðslega góður strákur að mér dettur þvílíkur skítburður ekki í hug. =P jæja ég er hættur áður en ég missi eithvað útúr mér veriði sæl og ekkert væl =* 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.01.2005 20:30:35 / pimp

y0y0y0 hvað segiði rúsínurassgötin mín

Halló Halló ég er víst kominn á klakann aftur og ekki kvarta ég yfir því enda búinn að djúsa í 2vikur samfleitt, var kominn með nóg af þessu skralli enda lifi ég einstakelga reglusömu og heilsusamlegu lífi hér heima sem sannaðist helgina eftir að ég kom heim. Málið var það að ég kom heim með flensu og hálsbólgu. Mamma brá á það ráð að gefa mér bráðsterkt Drambui sem á að drepa allt sem að kjafti kemur. Ég lét þennan óþverra inn fyrir mínar varir eftir sona korter þ.e sá tími sem tók að samfæra mig um að þetta virkaði. Þetta var ógeðslegt á bragðið en jesús kristur það kviknaði á einhverjum djöfulanum. 'Eg leit á pabba og spurði hann hvar hann geymdi bjórinn mamma var ekki par hrifin en ég fann eina kippu niður í kjallara. Daginn eftir ákvað ég að skella mér í afmælið tl dagrúnar sem var mjög gaman og endaði frekar ölvaður niður á mörk =) Fólk starði mjög svo á bling blingið sem að ég fékk á canarí. Þær fréttir voru víst að berast að Erlendur hafi rifið sitt af  fljótlega eftir að heim var komið. Það býr greinilega ekki meiri dólgur í honum en þetta =P. ég reikna með að bróðir hans og strákarnir í sveitinni hafi veitt honum slæma útreið vegna uppátækisins og elli greyið hefur fjarlægt hinn rándýra gimsteinn úr eyra sér sem er jú nákvæm eftirlíking af hnullungnum sem að beckam hefur í eyra sér. Já ég kom sjálfum ´mer á óvart þarna á laugardaginn þar sem að áramótaheitið  var að drekka ekki næstu mánuði eftir ferðina en ég er greinilega ekkert betri en elli og gafst upp dag 2 eða 3 =P. sé ekki eftir því að hafa fengið mér smá lögg enda ekki byrjaður að pumpa og því ekki að skemma neitt. Núna er ég kominn á ágætist skrið eftir eina viku í salnum og mér fynst útlitið nokkuð bjart. stefni í rúm 95kg. verð enga stund að því það versta er að stúlkurnar þola ekki mikið meiri þyngd en 90kg alltaf vælandi yfir því að ég meiði o.s.fv en við dólgarnir pælum jú lítt í því og ef þær geta ekki lagt smá á sig meina Halló! maður er að lyfta á hverjum degi sko.. En já ég er bara farinn að röfla einhverja djöfuls steypu hérna... =p hvernig væri að fá nokkur komment frá hinni gamalkunnu Öglu og lyfta þessari síðu aðeins upp kanski að bjóða henni að logga sig inn bara á dólga svæðið það væri gaman þá gæti hún babblað um allt það (heitasta) slúðrað og bullað um okkur hin hérna hjá okkur í beinni það væri frábært =) en já hehe ætla ekki að sleppa mér hérna er að specca ídolið.
 Ciao!!!! Grande Gahornes Over and out  

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.01.2005 19:32:43 / Dólgur

Jæja þá er komið að því!!!

Jæja veit ekki hvað er að gerast með þetta blog en drengirnir mættu vera duglegri við að skrifa inná það en ég geri mitt besta! En já ég brá mér á bjórkveld á föstudag með Hrannar og skoðaði kellingarnar sem að virðast koma vel undan jólum þó með mismiklum árangri en meikaði að tala við nokkrar og það var fínt en reyndar datt allur dampur úr mér þegar ég fór inná salerni og strákandsskoti spurði mig hvort að ég væri KALL? og ég nottla bara "það er að sjálfsögðu bara einn kall´hérna og það er ég!!!" NEI kall.(punktur)is. SPRIFF og sussumsvei ég líktist steríótýpunum svo mikið að ég var spurður hvort ég væri kall.is (tel samt að ástæðan sé sú að ÉG sprengi tjellingarnar en EKKI þeir!) nóg um það ég datt illilega í það á laugardaginn líka eða reyndar hætti ekki að drekka hélt bara áfram og mætti gallvaskur í afmæli til Dagrúnar sem að heppnaðist bara nokk vel og skellti mér síðan í mekka skemmtanaiðnaðarins Mörkina, svei var kominn heim að æla um 3 (orðinn of gamall fyrir 2 daga) og er enn þunnur og ætla því að setja upptalningu hér og vera edrú þangað til næst!

Haldiði þessu raunverulegu og friður Villi


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3